Íþróttafélagið Magni frá Grenivík mun tefla fram kvennaliði í knattspyrnu í sumar og taka þátt í 1. deild kvenna, B-riðli. Í þeim riðli eru einnig Sindri, Höttur, Völsungur, Leiknir F og Fjarðarbyggð svo að þetta er sannkallaður Austurlandsriðill að því að fram kemur á heimasíðu Magna http://www.magni.tk. Kvennalið Magna mun að mestu verða skipað stelpum frá Akureyri en einnig verða í hópnum nokkrar ungar stelpur frá Grenivík, ásamt því að vonir standa til að nokkrar "eldri" stelpur frá Grenivík taki fram skóna að nýju.
Öflugt yngri flokka starf er rekið hjá Magna og hafa stelpuflokkarnir verið sérstakleg öflugir í gegnum tíðina og er það von þeirra sem að starfinu standa að þetta nýjasta útspil verði til þess að efla enn frekar starfsemi yngri flokkanna.





